30. mars 2012Mottumars 2012 lokið
Alls söfnuðust 28,9 milljónir krónur þegar formlegri söfnun áheita í árveknis – og fjáröflunarátakinu Mottumars lauk. Sigurvegari í einstaklingskeppni var Magnús Sigurbjörnsson en í liðakeppni reyndist lið Arionbanka fengsælast. Fallegustu mottunni, að mati Meistarafélags hárskera, skartaði Guðmundur Þorlákur Guðmundsson. Þótt formlegri söfnun áheita í Mottumars 2012 sé nú lokið verður hægt að leggja átakinu áfram lið fram yfir mánaðamót í gegnum vefsíðuna mottumars.is
Vefurinn mottumars.is keyrir á áheitakerfi WebMaster.