Umsagnir Viðskiptavina


„Að sögn Hildar Grétarsdóttur, forstöðumanns gæða- og þróunarmála hjá Verði gekk samstarfið við TM Software mjög vel. ”Við völdum WebMaster vefumsjónarkerfið af því það er einfalt í notkun og hentugt fyrir vef eins og okkar. Samstarfið við TM Software hefur gengið mjög vel og við höfum fengið mjög góða þjónustu í tengslum við þennan nýja vef.”

HILDUR GRÉTARSDÓTTIR, forstöðumaður gæða- og þróunarmála hjá Verði

 

„Áður fór mikill mannafli og tími hjá okkur í að veita upplýsingar í gegnum síma um stöðu krafna. Núna nálgast viðskiptavinir okkar allar þessar upplýsingar á vefnum, sundurgreindar og í rauntíma. Þarna liggur mikill sparnaður."

HRAFNKELL SIGTRYGGSSON, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Intrum á Íslandi 

 

„Formasmiðurinn hefur hjálpað okkur verulega við að taka á móti og halda utan um þjónustubeiðnir og aðrar skráningar frá viðskiptavinum. Það er mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir þessi gögn og Formasmiðurinn auðveldar það til muna. Formasmiðurinn gerir okkur kleift að geta auðveldlega búið til hin ýmsu form hvenær sem við viljum.“

ÓMAR ÖRN JÓNSSON, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar

„Vefverslunin frá WebMaster var góð viðbót við þær veflausnir sem við keyrum nú þegar í WebMaster vefumsjónarkerfinu. Öll vinnsla pantana er einföld og þægileg, hvoru tveggja fyrir notendur vefsins og starfsmenn Pressunnar. Vefverslunin hefur fengið góðar undirtektir hjá notendum og því höfum við ákveðið að stækka vefverslun Pressunar enn frekar og mun sú verslun líta dagsins ljós á næstu vikum.“

ARNAR ÆGISSON, framkvæmdastjóri Pressunnar (14.04.2010)



Flýtileiðir

Leit