Formasmiður
Formasmiður er kerfi sem býður upp á mjög einfalda leið til að búa til form - „rafræn eyðublöð“ - fyrir allar almennar umsóknir, beiðnir og skráningar. Innsendar umsóknir eru sendar í verkflæði sem tryggir eftirfylgni og úrlausn innsendra umsókna/beiðna.
Formasmiðurinn geymir öll form á aðgengilegan hátt. Það er undir notanda komið hvernig hann kýs að flokka þau niður.
Með einum smell er hægt að setja formið á vefinn svo að fólk geti nýtt sér það.
- Hægt er að tengja sama formið við fleiri en einn flokk
- Hægt er að breyta formum og endurnýta
- Hægt er að stilla fyrirfram birtingartíma forms á vef
Útfyllt form birtast í lista og hægt er að flokka þau niður í t.d. ‘í vinnslu´ og ´lokið´ ef um umsóknir er að ræða. Einnig býður kerfið upp á sjálfvirkan úrdrátt á vinningshafa ef það á að draga úr innsendum formum.
Meðhöndlun útfylltra forma
-
Verkflæði : óunnin, í vinnslu, lokið
-
Hægt er að færa hvern lista yfir í Word eða Excel skjal
-
Úrdráttur úr innsendum formum ef að t.d. um leik er að ræða